9. februar 2010
Áríðandi tilkynning frá Þorrablótsnefnd.
Með bæði gleði og trega tilkynnum við hér með breytingar á söluaðila matsins á blótinu okkar í ár. Það hefur verið okkar leiðarljós í undirbúningi þorrablótsins að halda kostnaði í algjöru lágmarki þannig að flestir sjái sér fært um að mæta og njóti þar með góðs af. Liður í þeirri áætlun var að segja skilið við okkar ágæta Lystauka sem þjónustað hefur okkur með góðum árangri áður og tókum við tilboði Kjarnafæðis í staðinn. Við náðum góðum samningum við Kjarnafæði sem gerir okkur kleyft að hafa ríflega af mat þannig að þorrabakkarnir verða örugglega til sölu.
Þess ber að geta að ákvörðun þessi er engan vegin tekin vegna gæða þeirra þjónustu sem Lystauki býður upp heldur er verð þessarar ágætu veisluþjónustu því miður ekki samkeppnishæf við birgjann Kjarnafæði sem er einn stærsti matvælaframleiðandi á Íslandi.
Við höfum heyrt góðar sögur af Kjarnafæði og langar okkur því að auka við þjónustu til ykkar sem á blótið koma með því að versla við þá og hafa svigrúm til að hafa nógan góðan mat á boðstólnum. Engar breytingar eru hins vegar fyrirhugaðar á matseðli. Allar fyrirspurning og athugasemdir vegna þessarar ákvörðunar er beint til formanns þorrablótsnefndar, Steinunnar Önnu.
Með von um skilning og jákvæð viðbrögð við þessari breytingu
Fyrir hönd þorrablótsnefndar Steinunn Anna
Til baka
|